Óska eftir að skoða eða leigja húsnæði
Óska eftir að skoða húsnæði:
1) Þegar húsnæði hefur verið valið úr leitarvél skal velja “Hver sýnir”.
2) Þá fyllir þú út formið sem birtist.
3) Þú færð sendan tölvupóst með upplýsingum um húsnæðið og þann sem sýnir það, samstundis.
4) Þú hefur síðan samband við þann aðila, til að ákveða tíma til að skoða.
Óska eftir að leigja húsnæði:
Þegar þú hefur fundið húsnæði sem er í okkar þjónustu sem þú vilt leigja, getur þú sent okkur ósk um að leigja ákveðna eign á leiga@leiga.is eða hringt í okkur í síma 450-5544. Að öðrum kosti hefur þú samband við viðkomandi leigusala.
Við ráðleggjum eindregið aðilum leigusamninga á eigin vegum, að leita til okkar hjá Leiga.is, til að útbúa löggildan leigusamning vegna útleigunnar. Þannig er hagsmunum beggja aðila best borgið.