Leigufjárhæð
Einn af þeim þáttum sem er hvað mikilvægastur við útleigu á fasteign er leigufjárhæðin.
Of lág leiga getur leitt til:
- Leigusali tapar á að leigja út eignina - reynir því að skera niður nauðsynlegt viðhald í sparnaðarskyni.
- Leigjanda finnst eignin lítils virði og umgengni verður í samræmi við það.
Of há leiga getur leitt til:
- Eign leigist ekki út.
- Leigjandi er óánægður og fer því ekki vel með eignina.
- Leigjandi reynir að finna leiðir til að borga ekki umsamið leiguverð.
- Leigjandi reynir að finna aðra eign og komast undan leigusamningi.
- Leigjandi stendur ekki undir leigugreiðslum og lendir í vanskilum.
Fáðu ráðgjöf hjá starfsmönnum Leiga.is um hvaða leigufjárhæð þú getur sett á eignin þína!
Ráðleggingar varðandi fyrirframgreiðslur og tryggingar
Mikilvægt er fyrir leigusala að ganga rétt frá öllum tryggingum og fyrirframgreiðslu á húsaleigu. Löggiltur leigumiðlari hjá Leiga.is er þá leigusala til halds og trausts.
Áður en afhending hins leigða húsnæðis fer fram er leigusala rétt að krefjast þess að leigjandi setji honum tryggingu fyrir réttum efndum á leigusamningnum, þ.e. fyrir leigugreiðslum og skaðabótum vegna tjóns á hinu leigða sem leigjandi ber ábyrgð á samkvæmt lögum.
Ákvæði sem lúta að fyrirframgreiðslu leigu og annars konar tryggingum fyrir leigugreiðslum og finna má í Húsaleigulögum:
Í 34. gr. er ákvæði um réttaráhrif fyrirframgreiðslu á húsaleigu. Meginreglan er sú að ef samið er um fyrirframgreiðslu fyrir lengri tíma en þrjá mánuði þá hefur það þær afleiðingar að leigjandi öðlast kröfu um leigurétt í þrefaldan þann tíma sem hann greiddi fyrir. Ákvæðinu er ætlað að stemma stigu við óhóflegum fyrirframgreiðslum á húsaleigu þegar um íbúðarhúsnæði er að ræða.
Í 35. gr. er kveðið á um að afhending á skuldabréfum, víxlum, tékka eða öðrum viðskiptabréfum til greiðslu fram í tímann teljist fyrirframgreiðsla í skilningi 34. gr. með tilheyrandi réttaráhrifum.
Í 39.–40. gr. er fjallað um tryggingar sem leigjandi setur fyrir því að hann efni leigusamninginn.
Fyrir frekari upplýsingar um þjónustuleiðir okkar á þessu sviði, hafðu samband við löggiltan leigumiðlara hjá Leiga.is í síma 615-4422.