Leit

Löggild leigumiðlun

Samkvæmt húsaleigulögum mega þeir einir reka leigumiðlun um húsnæði, hvort sem er íbúðar- eða atvinnuhúsnæði, sem til þess hafa hlotið sérstakt leyfi félagsmálaráðherra.

Hlutverk leigumiðlara er að hafa milligöngu um leigu á íbúðar- og atvinnuhúsnæði á milli leigusala og leigjanda, það er að koma á leigusamningi, annast framleigu eða skipti á leiguhúsnæði.

Leigumiðlari ber ábyrgð á því að leigusamningur sé gerður í samræmi við húsaleigulögin. Ber honum skylda til að upplýsa aðila leigusamnings, þ.e. leigjanda og leigusala, um þau réttindi og þær skyldur sem þeir taka á sig með undirritun leigusamnings. Leigumiðlari skal ætíð vanda til gerðar leigusamnings og gæta þess að þar komi fram allar þær upplýsingar sem máli skipta.

Leigumiðlari er tryggingaskyldur samkvæmt reglugerð fyrir greiðslu kostnaðar og tjóns sem aðilar leigusamnings kunna að verða fyrir af hans völdum.

Þóknun fyrir störf leigumiðlara við að koma á leigusamningi á milli leigusala og leigjanda greiðist úr hendi leigusala. Leigumiðlara er óheimilt að taka þóknun af leigjanda fyrir miðlunina og gerð leigusamnings. Þó er leigumiðlara heimilt að áskilja sér sanngjarna þóknun eða kostnað úr hendi leigjanda ef um er að ræða sérstaka þjónustu í hans þágu.  Þóknun fyrir önnur störf sem leigumiðlara er falið að sinna í tengslum við framkvæmd leigusamningsins sem aðilar hans, annar eða báðir, fela leigumiðlara að annast fyrir sína hönd, greiðist af viðkomandi aðila.

Jóhann Halldórsson er með leyfi nr.53 frá félagsmálaráðherra til að reka leigumiðlun skv. húsaleigulögum nr. 36/1994 og reglugerð 675/1994.

Símon Halldórsson er með leyfi nr.54 frá félagsmálaráðherra til að reka leigumiðlun skv. húsaleigulögum nr. 36/1994 og reglugerð 675/1994.

Leiga.is - Eignir óskast


Hárgreiðslustofan Salon Nes


Þvegillinn


Geymsla-1