Tilmæli frá lögreglu: Aldrei greiða húsaleigu nema búið sé að skoða íbúðina og kanna hvort auglýsandinn sé eigandi hennar.
Police notice: Always inspect the apartment before paying rent and ensure that the advertiser is the actual owner.
Eignin er 3ja herbergja á 2. hæð í fjölbýlishúsi í hólahverfi til langtímaleigu og er eignin laus strax. Íbúðin er björt og opin með yfirbyggðum svölum.
Á 1. hæð hússins er sérgeymsla um 5 fm íbúðarinnar, sameiginleg hjóla- og vagnageymsla og sameiginlegt þvottahús og eins er sameiginlegur frystir.
Nánari lýsing:
Forstofa: parket á gólfi og fataskápur.
Stofa: Parket á gólfi. Útgengt á yfirbyggðar svalir.
Eldhús: Ágætis upprunaleg innrétting og eldhúskrókur. Opið inní stofu.
Svefnherbergi: Tvö svefnherbergi með parketi á gólfi, með góðum innbyggðum fataskápum.
Baðherbergi: Dúkur á gólfi, baðkar með sturtuhaus. Tengi fyrir þvottavél.
Stutt er í alla þjónustu s.s verslanir, bókasafn, Fjölbrautarskólinn í Breiðholti, Breiðholtslaug, World Class, íþróttasvæði Leiknis, bónus og apótek.
Til að fá upplýsingar um hver sýnir þessa eign - smelltu á appelsínugula hnappinn "Senda fyrirspurn"